Við hófum leikinn með því að færa stóru árlegu ráðstefnuna okkar, sem jafnan er haldin á aðalfundardeginum, úr stóra sal Hilton Nordica og yfir á netið, á þremur dögum! Ekki var búið að setja á samkomubann en með þessu vildu samtökin sýna ábyrgð í verki og var samkomubann sett á nokkrum dögum síðar. Óhætt er að segja að ráðstefnan hafi gengið vel með samstilltu átaki félagsfólks okkar hjá Sahara, frábærra fyrirlesara sem óhætt er að segja að kunni að laga sig að aðstæðum og allt þetta þrátt fyrir að markaðs- og kynningarstjóri samtakanna hafi þurft að leiða verkefnið heiman frá sér þar sem hún var í sóttkví.
Það var enda við hæfi að yfirskrift ráðstefnunnar var Kveikjum á okkur! Ráðstefna um stafræna tækni og nýtt hugarfar, en lykilatriði í stafrænu hugarfari eru jú m.a. aðlögunarhæfni og lausnarmiðuðu hugsun.
Yfir 550 manns skráðu sig á ráðstefnuna og voru jafnan um 250 manns sem horfðu á hana í lifandi streymi, þrátt fyrir áhorfskeppni við 12. upplýsingafund almannavarna um COVID-19 í aðdraganda samkomubanns, sem fram fór á sama tíma.
Upptökur af fyrirlestrum ráðstefnunnar eru aðgengilegar á félagasvæðinu á innri vef samtakanna.
Vorið 2020 breyttist ýmislegt, eins og við öll vitum. Eftir að hafa snúið stóru ráðstefnunni okkar yfir í raunheima vorum við í smá limbó í nokkurn tíma varðandi fyrirkomulag á fræðslu- og viðburðadagskrá SVÞ, auk þess sem stemmningin var kannski ekki til þess fallin að fólk flykktist á viðburði fyrst um sinn – ekki einu sinni á netinu. Sem liður í að hvetja okkar fólk áfram og hjálpa til við að halda eins góðum anda og mögulegt væri átti SVÞ frumkvæðið að því að settur var upp Facebook hópur, í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök iðnaðarins, undir yfirskriftinni Höldum áfram! Það verkefni hefur í framhaldinu færst yfir til Samtaka atvinnulífsins og áherslur þess breyst, en eitt af því sem kom út úr þessum fyrstu vikum og mánuðum í hópnum voru morgunstundir Höldum áfram! þar sem tekin voru viðtöl við fjölda öflugra einstaklinga, sem eiga ekki síður erindi við okkur í dag en þau gerðu þá.
Upptökur af morgunstundunum má nú finna á félagasvæðinu á innri vefnum.
Um 650 manns skráðu sig á vikulanga ráðstefnu SVÞ og félagsfólks okkar í KoiKoi um vöxt og bestun vefverslana, sem haldin var í byrjun febrúar. Á ráðstefnunni voru 20 erindi sem fjölluðu um fjölmörg viðfangsefni vefverslunar, allt frá þróun í vefverslun á síðustu árum, upplifunarhönnun, efnisbestun, markaðssetningu, leitarvélabestun og svo mætti lengi telja, auk reynslusagna frá félagsfólki okkar í öflugum vefverslunarfyrirtækjum.
Ákveðið var að hafa ráðstefnuna opna á þeim tíma sem fyrirlestrarnir fóru fram, en upptökur síðan eingöngu aðgengilegar félagsmönnum. Þannig vill SVÞ leggja sín lóð á vogarskálarnar að efla íslenska netverslun almennt, enda hefur ímynd allra innlendra vefverslana áhrif á upplifun viðskiptavina af íslenskri vefverslun og þar með velgengni greinarinnar í heild.
Allar upptökur frá ráðstefnunni má nú finna á félagsvæðinu á innri vefnum.
Smelltu á myndbandið til að sjá yfirlit yfir aðra helstu fræðslufundi og viðburði ársins, sem að sjálfsögðu voru stafrænir.