Menntamál hafa verið áberandi á vettvangi stjórnar SVÞ á starfsárinu enda er sá málaflokkur að verða sífellt mikilvægari í öllu starfi hagsmunaaðila fyrir atvinnulífið.
Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík hefur boðið upp á námslínu fyrir stjórnendur í verslun og þjónustu og var slík lína keyrð síðastliðið haust.
Námsbraut á fagháskólastigi í verslun og þjónustu hefur fest sig í sessi en námsbrautin er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Bifröst. Þar stundar 21 nemandi nám í dag.
Stafræn viðskiptalína er ný námslína á framhaldsskólastigi við Verslunarskóla Íslands sem hóf göngu sína haustið 2019. Unnið hefur verið að skipulagi námsins undanfarin tvö ár að frumkvæði SVÞ í samstarfi við Verslunarskólann, VR og Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks. Sérstaða námslínunnar er mikil þar sem í fyrsta skipti er boðið upp á vinnustaðanám sem hluta af námi til stúdentsprófs. Vinnustaðanámið er afmarkað við fyrirtæki sem sérhæfa sig í stafrænum lausnum eins og t.d. vefverslanir. Tækninni fleygir fram og krafan um aukna menntun í verslun og þjónustu fer vaxandi samhliða þeirri stafrænu þróun sem er að verða í atvinnugreininni.
Fagnámi verslunarinnar er 90 eininga nám á framhaldsskólastigi ætlað starfsfólki í verslun sem einnig er hýst í Verslunarskóla Íslands. Brautin er kennd í fjarnámi og á vettvangi starfsmanna í samstarfi við fyrirtæki í verslun og þjónustu.
Kennsla námsbrautarinnar hófst í janúar 2020. Byggir mat starfsmanna á raunfærnimati og er unnið í nánu samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem og Mími símenntunarstöð. Sara Dögg forstöðumaður menntamála situr fyrir hönd SVÞ í stýrihópi sem fer fyrir þróun beggja þessara brauta.
Aðkoma samtakanna að fræðslu- og menntamálum hefur verið með margs konar hætti, m.a. með þátttöku fulltrúa í ráðum sem hafa með fræðslu- og menntamál að gera og með stuðningi við verkefni á sviði mennta- og fræðslumála. Verkefnin eru fjölbreytt og má þar nefna eftirfarandi:
Stýrihópur um tvær námsbrautir á framhaldsskólastigi sem er unnin í samstarfi við Verslunarskóla Íslands.
Þróunarhópur um nýja námsbraut við Verslunarskóla Íslands, Stafræn viðskiptabraut sem fór af stað haustið 2019.
Stýrihópur um námsbraut á fagháskólastigi en skráningu á námsbrautina er lokið og námið hafið.
Samráðshópur um nám fullorðinna en óskað var eftir tilnefningum frá velferðarráðuneyti, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, ASÍ, SA, BSRB, Bandalagi Háskólamanna (BHM), Félagi framhaldsskólakennara, Skólameistarafélagi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Menntamálastofnun, Innflytjendaráði, Kvasi, ÖBÍ, Fjölmennt, Vinnumálastofnun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, EPALE (Rannís) og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Samráðshópurinn er skipaður til fjögurra ára.
Verkefnahópur um úrbætur í menntun, hæfingu, atvinnu og tómstundum fyrir nemendur sem lokið hafa námi á starfsbrautum framhaldsskóla. Óskað var eftir tilnefningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Starfsgreinaráð verslunar- og skrifstofufólks en það sinnir fjölmörgum verkefnum er snúa að menntun og fræðslu fyrir skrifstofu- og verslunargreinar.
Starfsgreinaráð fyrir samgöngu-, farartækja- og flutningagreinar. Þar er unnið víðtækt starf er snýr að menntun og fræðslumálum.
Innan Húss atvinnulífsins er starfrækt menntanefnd sem er skipuð fulltrúum frá SA og öllum aðildarfélögum. Nefndin fundar reglulega og fer yfir helstu mál hverju sinni, áherslur og verkefni.
Menntadagur atvinnulífsins er haldinn árlega og ber menntanefndin ábyrgð á honum, heldur utan um skipulag og framkvæmd.
Menntanefndin sameinast um ýmis verkefni á sviði mennta-, fræðslu- og mannauðsmála og má þar nefna röð morgunverðarfunda um menntun og mannauð.
Unnið er áfram að hæfniramma um íslenska menntun sem mennta- og menningarmálaráðuneyti, ASÍ, SA, BSRB, Kvasir, Leikni, Bandalag háskólamanna (BHM), Samtök íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) undirrituðu fyrir rúmu ári. Hæfniramma um íslenska menntun er ætlað að endurspegla stigvaxandi hæfnikröfur í formlegu og óformlegu námi á Íslandi. Kortlagning starfsgreinaráðs á störfum innan verslunar nýtist vel fyrir greinina og tengir inn í hæfniþrep íslenska hæfnirammans.