Frá því í september hafa nýir félagar fengið sjálfvirka röð tölvupósta með vikulegu millibili í nokkrar vikur þar sem þeim er kynnt starfsemi samtakanna. Eldri félagar fengu seríuna einnig senda í haust. Í henni er félagsfólk frætt um ýmislegt gagnlegt sem tengist starfseminni og hvernig þau geta fengið sem mest út úr aðildinni að SVÞ. T.d. eru póstar sem kynna starfsfólk samtakanna, segja frá því hverskonar mál samtökin geta helst aðstoðað félagsfólk með, almenn hagsmunagæsla samtakanna er kynnt, fræðslu- og viðburðadagskráin, faghópastarfið o.fl. Hefur kynningin almennt mælst vel fyrir.
Á haustdögum var tekið í gagnið í Húsi atvinnulífsins Stúdíó B35, á þriðju hæð hússins, sem búið er góðum tækjabúnaði til að taka upp, og streyma, fyrirlestrum, umræðum og öðru efni frá samtökunum í húsinu, hvort sem er í hljóði eða í mynd.
Stúdíóið hefur verið draumur samskiptafólks í húsinu lengi, en hefur ekki síst komið sér vel nú þegar kórónufaraldurinn hefur komið í veg fyrir hefðbundin funda- og ráðstefnuhöld. Er fólk almennt sammála um að þó að það verði gaman að geta hist í persónu þegar heimsfaraldurinn er yfirstaðinn muni stúdíóið áfram verða mikið notað, enda er frábært að geta á einfaldan hátt, með skömmum fyrirvara, og litlum tilkostnaði, framleitt efni til að koma skilaboðum samtakanna í húsinu á framfæri á áhrifaríkan - og stafrænan - hátt.
Stúdíó B35 var m.a. notað til að taka upp alla 20 fyrirlestrana sem haldnir voru á vikulangri vefverslunarráðstefnu SVÞ í byrjun febrúar, og nú síðast til að taka upp ávarp formanns SVÞ í tilefni af aðalfundinum.
Félagasvæði á innri vef SVÞ fór í loftið í lok sumars og getur félagsfólk nú nálgast þar upptökur af viðburðum og fyrirlestrum, auk annars gagnlegs efnis. Á innri vefnum eru nú hvorki meira né minna en 67 fyrirlestrar og viðtöl aðgengileg og sífellt bætist við. Aðgangur að svæðinu er í gegnum Mínar síður (atvinnulif.is) með persónulegum rafrænum skilríkjum. Fyrir þau sem ekki eru þegar komin með aðgang má sjá leiðbeiningar hér um hvernig má fá hann.