- stafræn umbreyting eða dauði
Hefð er fyrir því að halda stóra ráðstefnu í tilefni aðalfundar SVÞ ár hvert. Í ár var ákveðið að breyta út af venjunni, enda skjáþreyta farin að hrjá landsmenn og því ráð að finna árangusríkari leiðir til að fræða félagsmenn og atvinnulífið allt.
Fimmtudaginn 18. mars kl. 10:00 var því frumsýning á þætti, á vefmiðlum SVÞ og á helstu veffréttamiðlum landsins, undir yfirskriftinni Uppfærum Ísland - stafræn umbreyting eða dauði þar sem rætt var við formann SVÞ, forsætisráðherra og ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar um áhrif stafrænnar umbreytingar, þau tækifæri og áskoranir sem í henni felast, stöðu íslensks atvinnulífs á því sviði og það verkefni sem við eigum fyrir höndum við að uppfæra Ísland.
Frændþjóðir okkar á Norðurlöndunum eru undantekningarlaust í topp 10 sætunum í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að stafrænni umbreytingu. Við ræddum við fulltrúa Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um góðan árangur þeirra landa, mikilvægi stuðnings stjórnvalda við atvinnulífið, hvað gert hefur verið hjá þeim o.fl.
Viðmælendur okkar frá Norðurlöndunum voru:
Hanna Marttinen-Deakins, Senior Director, Digitalisation, Business Finland
Jan Damsgaard, Professor við stafrænu deildina í Copenhagen Business School, fulltrúi í danska Disruption ráðinu á vegum stjórnvalda og stjórnarmaður í SMV:Digital
Lena Carlsson, Deputy Director General, Regeringskansliet, Infrastrukturdepartmentet (innviðaráðuneytið), Digital Society Division í Svíþjóð. Lena fer fyrir stafrænum stefnumálum sænsku ríkisstjórnarinnar.
Paul Chaffey, Statssekretær, Kommunal- og moderniseringsdepartmentet, helsti ráðgjafi ráðherra stafrænna mála í Noregi.