Drifkraftur innra starfs SVÞ!
Öflugt faghópastarf er drifkraftur innra starfs SVÞ
Smelltu á nafn hópsins til að fræðast meira um starfsemi hans
Faggildingarhópur
Flutningasvið SVÞ
Hagsmunahópur bókhaldsstofa
Hagsmunahópur blómaverslana
Hagsmunahópur fasteignafélaga
Hagsmunahópur hreingerningafyrirtækja
Hópur um lausasölulyf
Hópur um opinber innkaup
Hópur vátryggingamiðlara
Lyfsöluhópur
Samtök heilbrigðisfyrirtækja
Samtök sjálfstæðra skóla
Samtök ökuskóla
Stafræn viðskipti á Íslandi
Öryggishópur
Hlutverk hópsins er að auka skilning almennings, atvinnulífs og hins opinbera á inntaki faggildingar og kostum þess að beita henni við ýmsa eftirlits- og prófunarstafsemi. Hópurinn fundar að jafnaði einu sinni í mánuði og fjallar um áskoranir í rekstri faggiltra fyrirtækja. Hópurinn hefur verið virkur í starfi faggildingarráðs og á þar sérstakan fulltrúa. Á síðasta ári vann hópurinn að skilgreiningu verkefna Vinnueftirlitsins sem einkafyrirtæki gætu tekið að sér að annast, átti fundi með fulltrúa stjórnvalda sem fæst við endurmat útgjalda, hitti þingmann og vann að umsögnum um mál sem sneri að hagsmunamálum faggiltra fyrirtækja. Skoðunarstöðvar hafa annast innheimtu bifreiðaskatta fyrir stjórnvöld og umstang vegna breytinga á því fyrirkomulagi voru þónokkur. Fjölmörg álitaefni hafa verið tekið til umfjöllunar á vettvangi hópsins og er umtalsverð vinna framundan vegna hagsmuna faggiltra fyrirtækja.
Í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er að finna umfjöllun um tækifæri til orkuskipta í landflutningum en bein tillaga um aðgerðir kemur þar ekki fram. Flutningasviðið ákvað að taka málið áfram og hefur að undanförnu eitt kröftum í að rannsaka og leita skynsamlegra leiða til að fást við orkuskiptin. Ljóst er að verkefnið er töluverð áskorun enda er framleiðsla nýorkuökutækja til þungaflutninga á prófunarstigi og innviðaþörf óljós. Flutningasviðið átti góða fundi með samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu vegna undirbúnings breytinga á löggjöf um siglingar og skip. Þá mótaði sviðið t.am. afstöðu vegna draga að reglugerð sem heimila sveitarfélögum að banna við umferð undir tilteknum kringumstæðum og samgönguáætlana hins opinbera.
Hagsmunahópur bókhaldsstofa var stofnaður þann 12. júní 2020 og er tilgangur hópsins að gæta hagsmuna bókhaldsstofa, skapa faglegan og gagnsæjan vettvang til skoðanaskipta og vera í fyrirsvari gagnvart opinberum aðilum. Lögaðilar innan SVÞ sem annast rekstur bókhaldsstofu geta verið aðilar að hópnum.
Hópurinn hóf starfsemi sína með því að kynna starfsemi sína fyrir skattyfirvöldum og stjórnarráðinu. Í framhaldinu réðist hópurinn í rannsókn á fyrirkomulagi viðurkenningar á hæfni og getu bókhaldara og bókhaldsstofa. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra lýsti þeim áformum á árinu að opinber aðkoma að viðurkenningu bókara yrði aflögð og því var ljóst að hætta væri á nokkrum breytingum í starfsemi bókhaldsstofa. Hópurinn kom áherslum sínum á framfæri við stjórnvöld.
Hagsmunahópurinn hóf störf í apríl 2020 en tilgangur hópsins er að gæta hagsmuna blómaverslana, einkum hvað varðar samkeppnisumhverfi og annað rekstrar- og starfsumhverfi. Hópurinn hófst strax handa og að beiðni hans vann skrifstofa greinargerð um afleitt starfsumhverfi lítilla blómaverslana. Greinargerðinni ásamt beiðni um endurskoðun tollaumhverfis afskorinna blóma og blómstrandi pottaplantna var komið á framfæri við viðeigandi ráðherra ríkisstjórnarinnar og henni fylgt eftir á fundi með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Í framhaldinu undirbjó hópurinn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna aðstæðna á markaði sem er uppskiptur og háður sterkum markaðsyfirráðum fárra framleiðenda og heildverslana.
Í hópnum sitja stjórnendur stærstu fasteignafélaga landsins. Hópurinn fundar eftir þörfum og tekur fyrir þau verkefni sem framundan eru. Á síðasta ári fjallaði hópurinn m.a. um verkefni á vegum Reykjavíkurborgar, beitti sér fyrir breytingum á lagaákvæðum um atvinnuhúsnæði í blönduðum fjöleignarhúsum og kom á framfæri athugasemdum og ábendingum vegna lagabreytinga sem snerta samskipti leigusala og leigutaka í víðu samhengi. Undir hópnum starfar óformlegur hópur lögfræðinga fasteignafélaga og SVÞ og hefur hann einkum fengist við lagalega greiningarvinnu og mótun úrbótatillagna. Hefur fyrirkomulagið reynst vel.
Á árinu tókst hópurinn á við tvö stór verkefni, þ.e. annars vegar opinbera skráningu atvinnuhúsnæðis sem hefur um langa hríð verið haldin töluverðum annmörkum er hefur gert áætlanagerð og mat á þörf fyrir uppbyggingu erfiða viðfangs og hins vegar kröfugerð vegna breytinga á fyrirkomlagi fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði. Ljóst er að fasteignaskattar hér á landi eru afar háir og fara hækkandi með hverju árinu í raun án þess að stjórnmálalegar ákvarðanir liggi þeim til grundvallar.
Faglegri vinnubrögð við framkvæmd opinberra útboða er áfram aðal viðfangsefni þessa hagsmunahóps. Hér er um viðvarandi verkefni að ræða en svo virðist sem að ekki sé hægt að koma þessum málum endanlega í viðundandi horf, þar sem mannabreytingar í viðkomandi störfum hjá ríki og sveitarfélögum geta auðveldlega leitt til versnandi vinnubragða á þessu sviði. Sífellt er þörf á að benda á þá einföldu staðreynd að í þessu efni fara saman hagsmunir verkkaupa og verksala, þ.e. það er beggja hagur að vinnubrögð við framkvæmd opinberra útboða séu vönduð og fagleg.
Hópur um lausasölulyf vinnur að auknu markaðsaðgengi lausasölulyfja hér á landi. Hópurinn sendi umsögn um frumvarp til nýrra lyfjalaga þar sem hvatt var til þess að rýmkuð yrði að mun núverandi lagaákvæði um sölu lausasölulyfja í almennum verslunum. Jafnframt hefur hópurinn beitt sér fyrir breyttum og skýrari lagareglum um sölu og markaðssetningu nikótínpúða og auknum skýrleika um reglur um lyfjaauglýsingar. Formaður hópsins er Brynjúlfur Guðmundsson.
Fyrir hönd hópsins átti skrifstofa SVÞ fundi með Ríkiskaupum þar sem ábendingum um þætti sem betur mætti fara var komið á framfæri og fundaði með nýjum forstjóra stofnunarinnar skömmu eftir að hann hóf störf. Þá kallaði hópurinn eftir aðstoð skrifstofu SVÞ vegna framsetningar fyrirspurna í útboðsferli. Ljóst er að þörf er á að stjórnvöldum sé veitt aðhald þegar að opinberum innkaupum kemur.
Hópur vátryggingamiðlara hefur á starfsárinu lagt áherslu á bætt samskipti við samstarfsfyrirtæki sín erlendis, einkum í Bretlandi. Vátrygginamiðlarar á Íslandi sinna einkum að miðlun trygginga fyrir erlend tryggingafélög sem hafa starsfleyfi á íslenskum markaði. Hafa verið haldnir nokkrir símafundir með þessum aðilum og horfa nú þessi samskipti til mun betri vegar. Hópur vátryggingamiðlara hefur einnig unnið að undirbúningi sameiginlegs útboðs á starfsábyrgðartryggingu fyrir vátryggingamiðlara. Formaður hópsins er Gísli Böðvarsson
Lyfsöluhópur SVÞ hefur það sem meginhlutverk að gæta hagsmuna smásölumarkaðar með lyf hér á landi.
Eftir margra ára undirbúning voru ný lyfjalög samþykkt sem lög frá Alþingi á vorþingi 2020 og tóku þau gildi 1. janúar 2021. Leystu þau af hólmi eldri lyfjalög sem voru orðin aldafjórðungs gömul og að mörgu leyti orðin úrelt bæði að efni og formi. Mikil vinna var lögð í umsögn um lagafrumvarpið þegar það var til meðferðar í þinginu og náðist nokkur árangur í að ná fram þeim breytingum sem hópurinn lagði áherslu á.
Verðlagning lyfja er háð opinberri ákvörðun og þ.a.l. fer stór hluti af vinnu hópsins í að koma á framfæri við þau stjórnvöld sem þar eiga hlut að máli, þeim atriðum sem máli skipta við ákvörðun um nýja smásöluálagningu lyfja. Löngum var málum háttað þannig að ný smáöluálagning tók gildi um áramót og gilti fyrir komandi almanaksár. Undanfarin tvö ár hefur hins vegar gætt nýs tóns í samskiptum við þá opinberu aðila sem koma að verðlagningu lyfja og hefur fyrri skipan þessa mála riðlast af þeim sökum. Sú viðhorfsbreyting og það skilningsleysi sem hún endurspeglar á mikilvægi lyfjageirans fyrir heilbrigðiskerfið í landinu hefur valdið miklum vonbrigðum. Verkefnið framundan er að byggja upp traust og trúnað aðila á ný. Formaður hópsins er Skúli Skúlason.
Samtök heilbrigðisfyrirtækja (SH) voru stofnuð 2009 og hafa verið starfandi undir hatti SVÞ æ síðan. Stærsta verkefni samtakanna á árinu hefur verið að fylgjast með og hafa áhrif á viðræður sérfræðilækna við Sjúkratryggingar Íslands um gerð nýs þjónustusamnigs, en þeir hafa verið samningslausir við stofnunina frá ársbyrjun 2019. Lítið sem ekkert þokaðist hins vegar í viðræðum við stofnunina á starfsárinu. Engum blöðum virðist um það að fletta að nær allir þeir sem eiga í viðræðum við Sjúkratryggingar íslands hafa sömu sögu að segja. Enginn samningsvilji er til staðar hjá stofnuninni.
Telja verður mjög líklegt að heilbrigðismál verði ofarlega á blaði sem kosningamál fyrir alþingiskosningar haustið 2021 og er þegar búið að leggja drög að ítarlegri upplýsingagjöf um þau mál sem unnið verður að í samstarfi við Samtök atvinnulífsins. Formaður SH er Dagný Jónsdóttir.
SVÞ sinnir skrifstofuhaldi og sér um hagsmunagæslu fyrir Samtök sjálfstæðra skóla (SSSK) sem stofnuð voru árið 2005 en skólar innan SSSK gengu í SVÞ árið 2008. Innan samtakanna eru 51 sjálfstætt starfandi skólar á leik- og grunnskólastigi.
Stjórn SSSK var þannig skipuð á starfsárinu: Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður og Þórdís Jóna Sigurðardóttir, varaformaður. Meðstjórnendur voru: Jón Örn Valsson, Sigríður Stephensen og Berglind Grétarsdóttir. Varamenn voru: Atli Magnússon og Alma Guðmundsdóttir.
Tæpt verður á því helsta í starfsemi samtakanna hér á eftir.
Í ársbyrjun óskaði stéttarfélagið Efling eftir því að sérstakur samningur yrði gerður við samtökin á milli Eflingar og SSSK. Samningaviðræður stóðu fram eftir árinu og voru í höfn á haustmánuðum. Er þetta í fyrsta skipti í sögu samtakanna að stéttarfélag semji beint við samtökin en hingað til hafa gilt tilvísunarsamningar við stéttarfélögin.
Undirbúningur hófst vegna endurskoðunar á þjónustusamningi leikskóla við Reykjavíkurborg.
Hagsmunagæsla fyrir SSSK snýr mikið að samskiptum og samvinnu við ríki og sveitarfélög. Komu mörg álitamál til umfjöllunar á starfsárinu.
Unnið hefur verið að því allt starfsárið að ná fram skýringum á forsendum hagstofutölu, forsendu útreikninga á framlagi til grunnskólanna. Fundur með menntamálaráðherra sem ekki hefur skilað neinum upplýsingum. Á haustmánuðum var lögð fram fyrirspurn á Alþingi til mennta- og menningarmálaráðherra um forsendur útreikinga á Hagstofutölunni og er beðið formlegs svars.
SSSK eru aðili að The European Council of National Associations of Independent Schools, ECNAIS, www.ecnais.org. Vegna heimsfaraldrar hefafa engir fundir eða ráðstefnur verið sótt á árinu.
Lítið fór fyrir félagsstarfi á starfsárinu vegna heimsfaraldrar, ráðstefnu sem og degi skólastjórnanda var frestað og engir opnir fundir fóru fram vegna samkomutakmarkana.
Aðalfundur SSSK var haldinn 10. maí sl. í salarkynnum Félagstofnunar stúdenta. Sara Dögg Svanhildardóttir var endurkjörin formaður og varaformaður var kjörin Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. Í lok fundar ávarpaði Margrét Pála Ólafsdóttir aðalfundargesti í tilefni afmælisárs en samtökin fögnuðu 15 ára starfsafmæli.
Félagsfundur vegna kjaramála: Sólveig kynnti samninga félags leikskólakennara á fundi með félagsmönnum.
Eftirfarandi féll niður vegna heimsfaraldrar:
Ítarlegra yfirlit yfir starfsemi síðasta starfsárs má sjá hér á vef SVÞ.
Á árinu sinnti skrifstofa SVÞ ýmsum verkefnum fyrir samtökin m.a. hvað varðaði breytingar á regluverki um ökuskírteini, endurmenntun ökukennara og verklega ökukennslu. Sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda komu í ýmsu tilliti illa við starfsemi skólanna og í því ljósi beittu samtökin sér fyrir breytingum.
Öryggishópur SVÞ
Eins og mörg undanfarin ár hefur öryggishópur SVÞ einkum beitt kröftum sínum í að bæta viðbrögð lögreglu við þjófnuðum og annarri brotastarfsemi í verslunum. Svo sem oft hefur verið bent á er það beina og óbeina tjón sem fyrirtækin og samfélagið allt verður fyrir af þessum sökum gífurlegt. Þó að ýmislegt hafi þokast í rétta átt, m.a. með auknum tæknilegum búnaði hjá lögreglu, vantar enn mikið upp á að þessi mál séu í viðunandi stöðu. Verður því áfram unnið í þessu mikla hagsmunamáli. Þess ber þó að geta að í því óvenjulega ástandi sem ríkt hefur í COVID og þeirri fækkun ferðalaga milli landa sem því hefur fylgt, hefur minna borið á þessari brotastarfsemi en oftast áður.