Rannsóknarsetur verslunarinnar annast rannsóknir og tölfræðiúrvinnslu fyrir verslun á Íslandi í þeim tilgangi að auka samkeppnishæfni verslunarfyrirtækja. Greiningin nær til neyslu Íslendinga hér á landi annarsvegar og neyslu ferðamanna hinsvegar. Í greiningunni er að finna mánaðarlegar tölur um greiðslukortaveltu í íslenskum krónum, sundurliðaða eftir útgjaldaliðum, ásamt hlutfallsbreytingum frá fyrri mánuði og sama mánuði fyrra árs. Upplýsingarnar er að finna á forsíðu vefs Rannsóknarsetursins, www.rsv.is.
Í samstarfi við Rannsóknasetur verslunarinnar er hafin gagnaöflun til að greina kauphegðun Íslendinga í vefverslun. Rannsóknasetur verslunarinnar vinnur greininguna sem mun koma út tvisvar á ári og innihalda lykiltölur til að fanga þróun í kauphegðun Íslendinga í vefverslun. Fyrsta skýrsla er væntanleg síðla sumars 2021 og verður opin félagsmönnum Samtaka verslunar og þjónustu á félagasvæði á innri vef SVÞ.
Rannsóknasetur verslunarinnar annast gerð mánaðarlegrar greiningar á þróun verðlags fyrir SVÞ. Í greiningunni er að finna sundurliðun Vísitölu neysluverðs nokkurra flokka afurða á neytenda- og þáttamarkaði, þ.m.t. verðþróun á mat, opinberri þjónustu, áfengi og tóbaki, húsgögnum og heimilistækjum, byggingariðnaði og heimsmarkaðsverð hrávöru. Greiningin birtist mánaðarlega, á útgáfudegi Vísitölu neysluverðs, á vef SVÞ, undir útgáfa.