Verkefni lögfræðisviðs voru að vanda fjölbreytt á árinu. Fyrst og fremst sneru þau að samskiptum aðildarfyrirtækja við stjórnvöld en svo virðist sem þörf fyrir aðra almenna lögfræðiráðgjöf fari vaxandi. Þegar efnahagslegra áhrifa heimsfaraldurs COVID-19 fór að gæta leituðu fjölmörg aðildarfyrirtæki til samtakanna vegna túlkunar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum auk þess sem þau leituðu ráðgjafar vegna röskunar á viðskiptum við önnur fyrirtæki og í sumum tilvikum stjórnvöld erlendis. Lögfræðisvið annaðist gerð einkamálakrafa í þjófnaðarmálum og vakti það sérstaka athygli að kortaþjófar virðast hagnýta póstbox til að nálgast útsviknar vörur.
Eftirfarandi eru dæmi um verkefni sem lögfræðisvið kom að á starfsárinu: