Stafræn þróun er líklega stærsta umbreytingaverkefni sem íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir og er eitt af áherslumálum stjórnar SVÞ þessi misserin.
Um leið og ör tækniþróun skapar gríðarleg tækifæri leiðir hún til kapphlaups sem fyrirtæki einfaldlega verða að taka þátt í. Tækniþróun hefur í för með sér hraðar og óumflýjanlegar breytingar á fjölmörgum rekstrarþáttum fyrirtækja, í öllum greinum, þar sem samkeppni takmarkast nú í fæstum tilvikum við landamæri.
Vísbendingar gefa til kynna að íslensk fyrirtæki séu að dragast aftur úr þeim þjóðum sem við berum okkur almennt saman við þegar kemur að hagnýtingu stafrænnar tækni.
Að mati SVÞ er veruleg þörf á skjótum, öflugum og markvissum aðgerðum til að efla stafræna færni í íslensku atvinnulífi og samfélagi í heild, eigi Ísland að komast hjá því að dragast aftur úr helstu samanburðar-ríkjum og standa höllum fæti í alþjóðlegri samkeppni.
Stjórn SVÞ afhenti iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í febrúar 2020 tillögur sínar um aðgerðir í þessum efnum.
Áhersla hefur m.a. verið lögð á að auka vægi stafrænnar þekkingar í þeim námsleiðum sem eru bæði í boði og í þróun og m.a. er nú hafið nám til stúdentsprófs í Verzlunarskóla Íslands með áherslu á stafræn viðskipti. Sjá frekari umfjöllun um það og aðrar námsbrautir í kaflanum um menntamál.
Menntamálaráðherra í heimsókn hjá nemendum á nýrri stafrænni línu hjá Verzlunarskólanum
Samtökin leggja einnig mikla áherslu á að tryggja að stafrænu málin verði hluti af nýrri menntastefnu ríkisstjórnarinnar, sem nú er í vinnslu.
Aðalráðstefna SVÞ hefur síðustu ár fjallað á einn eða annan hátt um stafræna umbreytingu.
Á ráðstefnunni 2019 var yfirskriftin „Keyrum framtíðina í gang!”. Aðalræðumaður var Greg Williams, ritstjóri tímaritsins WIRED en einnig steig á stokk Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara connect.
Ráðstefnan fór fram fyrir fullu húsi á Hilton Reykjavík Nordica og sjá má upptökur frá henni hér á Facebook síðu samtakanna, en upptöku af fyrirlestri Greg Williams í lokuðum Facebook hóp fyrir SVÞ félaga hér.
Smelltu til að stækka og spila myndbandið
Í myndbandinu hér fyrir neðan má svo sjá yfirlit yfir helstu viðburði og fræðslu tengd stafrænu umbreytingunni sem samtökin hafa boðið upp á á liðnu starfsári:
Á aðalfundi Faghóps um stafræna verslun, sem haldinn var 29. október voru samþykktar endurskoðaðar samþykktir hópsins sem útvíkka tilgang hans þannig að hann nái til stafrænna viðskipta í verslun og þjónustu. Jafnframt var nafni hópsins breytt í Stafræn viðskipti á Íslandi. Formaður hópsins er Bragi Þór Antoníusson, markaðsstjóri Elko.
Helstu viðfangsefni hópsins á árinu voru áskoranir netverslunar á Íslandi í víðu samhengi, hvort og hvernig hópurinn ætti að beita sér í þeim málum. Helstu mál sem tekin hafa verið fyrir eru:
Upp úr miðjum febrúar fór forsvarsfólk samtakanna á fund iðnaðar- og nýsköpunar-ráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur þar sem þau hvöttu til heild-stæðrar stefnumótunar í stafrænum málum fyrir Ísland, líkt og gert hefur verið í helstu löndum sem við berum okkur saman við. Að auki voru lagðar fram tillögur að aðgerðum til að efla stafræna færni í íslensku atvinnulífi.
Þessar tillögur eru nú til skoðunar í ráðuneytinu og samtökin eru einnig að fylgja þessum málum eftir með ýmsum öðrum leiðum.
Smelltu hér til að lesa tillögurnar