Tillaga
Starfsemi Stafræns hæfniseturs myndi óhjákvæmilega tengjast ýmsum verkefnum sem til munu koma vegna nýútgefinnar nýsköpunarstefnu Íslands, enda mikil skörun í nýsköpun og stafrænni umbreytingu. Þá munu ýmis verkefni í kjölfar skýrslu forsætisráðuneytisins um fjórðu iðnbyltinguna jafnframt kalla á skilvirkan framkvæmdavettvang. Sjá má fyrir sér að setrið yrði samstarfsverkefni atvinnulífs, vinnumarkaðar stjórnvalda og háskólasamfélagsins.
SVÞ, VR og Háskólinn í Reykjavík hafa þegar hafið undirbúning að slíku setri. Ljóst er þó að því breiðara samstarf sem næst um slíkt setur, því öflugra getur það orðið til að hraða stafrænni þróun í íslensku atvinnulífi.
Nú þegar er yfirlýstur vilji um samstarf við setrið frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks, auk öflugra aðila á Norðurlöndunum á borð við Center for Digital Dannelse, DigitalNorway, Handelsradet, Foreningen for Dansk Internethandel (FDIH) og Svensk Digital Handel auk þess sem sambandi hefur verið komið á við fleiri spennandi aðila með möguleikum á framtíðarsamstarfi.
Í dag eru hugmyndir um setrið unnar út frá þeirri hugmyndafræði að hægt sé að fara af stað strax með MVP (e. minimum viable product, eða minnstu mögulegu vöru), enda verkefnið brýnt. Hugsunin er að setrið sé sem allra minnst í sniðum, starfsemin fari fyrst og fremst fram á netinu og verði svo þróuð frekar með samstarfsaðilum, og í takt við niðurstöður rannsókna og þarfir atvinnulífsins.
Lítið en sterkt teymi haldi utan um kjarnaverkefnin og tengi svo í þær áttir sem þörf er hverju sinni og komi á samstarfi frekar en að stækka setrið sjálft. Mikilvægt er að setrið verði ekki að bákni þar sem það þarf að geta hreyft sig hratt í takt við þá öru þróun sem er ástæðan fyrir nauðsyn þess.
Setrinu er ekki ætlað að vera í samkeppni við einkaaðila á markaði heldur starfa á fyrstu þremur stigum vegferðarinnar, þ.e. vitund, umhugsun og ákvörðun (sjá mynd 1). Einkaaðilar taka svo við framkvæmd.
Á mynd 1 má sjá að hugmyndin er að á vitundarstiginu muni setrið sinna kynningu og fræðslu með ýmsum hætti, og á umhugsunar- og ákvörðunarstiginu er veitt fræðsla, ráðgjöf, upplýsingar og leiðbeiningar. Auk þess mun setrið veita greinargóðar og aðgengilegar upplýsingar um þá aðila sem geta unnið með fyrirtækjum og starfsfólki að framkvæmd.
Mynd 1: Smelltu til að stækka
Starfsemi setursins yrði margþætt, eins og sjá má af myndi 2:
Mynd 2: Smelltu til að stækka